Aðalvalmynd:
Um Surefire
Surefireljósin hafa lýst upp myrkrið í tæp 25 ár eða frá því árið 1986 þegar vasaljósið var endurþróað af vísindamönnum Surefire. Enn þann dag í dag kappkosta tæknisérfræðingar okkar við að þróa enn betri ljós en þekkst hafa og nota til þess nýjustu og bestu tækni sem völ er á.
Amerísk gæði. Helsti kaupendahópur okkar í gegnum tíðina hafa verið lögreglustofnanir, sérsveitir lögreglu og bandaríski herinn. Fyrir lögreglumenn getur rétta birtan við skyldustörfin skipt sköpum. Þessir kröfuhörðu notendur velja aðeins það besta. Surefireljósin eru handhæg, gríðalega öflug, sterk og áreiðanleg.
*Ljósin frá SUREFIRE eru lífstíðareign með lífstíðarábyrgð.
Þetta eru þeir eiginleikar sem þú þarfnast í myrkum óbyggðum, í rafmagnsleysi eða við vinnuna. Hvað sem þú starfar, gættu þess að hafa Surefire við hendina þegar myrkrið skellur á. Veldu ljósin sem fagmennirnir velja. Við eigum led ljós í miklu úrvali fyrir allar aðstæður.
Meðal fjölmargra viðskiptavina Surefire eru Navy Seal, FBI og U.S. Air Marshals. Þessir kröfuhörðu aðilar eru ekki einungis notendur heldur spila þeir stórt hlutverk í að þróa ljósin og bæta. Ljósin eru framleidd úr léttu en gríðalega sterku áli. Flest ljósin eru húðuð með Aluminum Oxide sem er annað sterkasta efni sem maðurinn þekkir. Eina efnið sterkara en það er demantur.
Surefire vörurnar fást í Garmin búðinni, Ögurhvarfi 2, Kópavogi.