Aðalvalmynd:
EP3 Sonic Defender
EarPro EP3 Sonic Defender heyrnartappar fyrir skotveiðimenn.
Surefire þróaði EP3 heyrnartappana fyrir bandaríska herinn. EP3 dempar skothvelli án þess að loka á alla heyrn. Menn geta því haldið uppi samræðum með heyrnartappana og hleypt af byssum án þess að hvellurinn verði ærandi. Að sjálfsögðu hentar EP3 líka við aðrar sambærilegar aðstæður.
EP3 heyrnartapparnir eru úr mjúku plastefni (ofnæmisprófuðu polymer) og þannig í laginu að þeir skorðast mjög vel í eyranu og haldast alveg kyrrir.
EP3 heyrnartapparnir falla inn í eyrað, þannig að ekkert vandamál er að vera með húfu, hjálm eða eyrnaband. Hægt er að tala í síma með tappann í eyrunum.
EP3 eru mjög þjálir og laga sig afar vel að eyranu og hlustinni. Hægri tappinn er litakóðaður, þannig að fljótlegt er að finna hvaða tappi á að fara í hvort eyra.
EP3 koma í plasthulstri til að þeir geymist með öruggum hætti meðan þeir eru ekki í notkun. Tappana má hreinsa með volgu sápuvatni.
Hljóðdempunin í EP3 virkar þannig að öll hljóð yfir 85 dB detta dauð niður ef svo má að orði komast. Þar er að verki einkaleyfisvernduð hljóðsía sem kallast Hocks Noise Braker filter. EP3 gefur 16 dB hljóðdempun, sem kemur alveg í veg fyrir að háir hvellir eða sambærileg hljóð fari yfir þolmörk.
Til viðbótar er hægt að loka alveg fyrir utanaðkomandi hljóðum með sérstökum áföstum tappa og þá heyrist talað mál ekki.
Hvaða stærð skal velja?
EP3 kemur í þremur stærðum til að heyrnartapparnir séu rétt og þægilega skorðaðir í samræmi við eyrnastærð.
Fyrir langflesta hentar medium, en fólk með fremur stór eyru ætti að taka large og fólk með lítil eyru að taka small.
Þeir sem vilja vita nákvæmlega hvaða stærð hentar geta mælt stærðina á því sem kallast ”helix bowl” í eyranu. Sjá mynd...
Bilið segir til um hvaða stærð af EP3 hentar best.
EarPro EP3 Sonic Defender fæst í Garmin búðinni
Ögurhvarfi 2, Kópavogi. Sími 577-6000.
Opið frá kl. 11:00 til 18:00 alla virka daga.
Verð: 2.990 kr. parið.