Doogl

Surefire vasaljós

Leita

Fara á síðu

Reynslusogur

Sendu okkur stutta og hnitmiðaða reynslusögu þar sem Surefire ljósin koma við sögu. Sögurnar verða birtar hér á vefsíðunni. Þú gætir átt von á glaðningi.

Nauðsynlegt er að fylla í reiti sem merktir eru með (*).

Umferðaróhapp á Hellisheiði

Nafn: Ljósalöggan
Ljós: G2, 6P LED og Z2-S


Ég fékk fyrsta Surefire ljósið fyrir 4 árum síðan og komst að því að vasaljós og vasaljós er ekki það sama. Við félagi minn í lögreglunni á Selfossi voru staddir í Kömbum og vorum að sinna umferðaróhappi í svarta myrkri og leiðinda vetrarveðri. Við þessar aðstæður var nauðsynlegt að vera með góð ljós en bifreiðarnar voru fyrir utan veg og aðstæðurnar mjög slæmar. Við félagarnir vorum báðir með Surefire G2 peruljós en þá voru LED ljósin ekki komin á markað.

Þessi ljós voru bylting árið 2006 og reyndust frábærlega við slæmar aðstæður eins og voru þarna í Kömbum þetta vetrarkvöld. Þarna komumst við að því að það er nauðsynlegt fyrir viðbragðsaðila eins og okkur að vera með varaljós eða auka batterí. En þar sem við vorum að nota ljósin mikið og þessi ljós ekki með sparneytinni LED peru þá varð ljós félaga míns batterílaust. Hann kom til mín alveg ómöglegur og spurði hvort ég hefði auka batterí á mér. Ég var ekki með slíkt á mér og sagði að hann yrði að fara í lögreglubílinn og sækja sér ljós þar (sem reyndar var ekki hálfdrættingur á við Surefire G2 peruljósið).

Það vildi svo skemmtilega til að þegar hann var að ganga í átt að lögreglubifreiðinni þá heyrði hann kallað til sín af vegfaranda hvort hann vantaði batterí. Félagi minn svaraði því játandi og kom þarna í ljós sú skemmtilega tilviljun að þarna var á ferð umboðsmaður Surefire ljósanna á Íslandi. Í dag, desember 2010, eigum við báðir 6P LED ljós ásamt keilu sem við getum sett framan á ljósin við umferðarstjórnun. Einnig á ég Z2-S LED sem ég hef sett á bláan filter með góðum árangri og er það toppurinn í dag á lögguljósunum að mínu mati.

Innbrotsþjófar gómaðir

Nafn: Lögreglumaður
Ljós: 6P LED


Var við skyldustörf sem lögreglumaður ásamt félaga mínum nú fyrir örfáum vikum síðan, Það var undir morgun er við ókum fram á innbrotsþjófa við iðju sína í sumarhúsahverfi á Suðurlandi.

Skemmst er frá því að segja að, að lokinni handtöku og afgreiðslu þess var skammur tími fyrir hendi til vettvangsvinnu, enda sól senn að rísa, en á vettvangi var að finna fótspor brotamanna í örþunnum snjó sem fallið hafði um nóttina og við höndina var Surefire vasaljósið sem okkar eina verkfæri til þess að lýsa upp brotavettvanginn til ljósmyndunar, áður en sönnunargögn myndu spillast.

Nýttist 6P-led ljósið vel til þess að lýsa vettvanginn fyrir ljósmyndun og varð gagnaöflun okkar á vettvangi til þess að höfuðpaur málsins var færður fyrir dómstóla og var úrskurður í gæsluvarðhald sem hann sætir enn, þegar þetta er skrifað.

Surefire við skyldustörfin

Nafn: BS
Ljós: LX2 Lumamax


Reynsla mín af Surefire er svo samtvinnuð því að allt gangi upp að það er erfitt að vita eftir á hversu oft ljósin hafa bjargað mér.
Það sem hins vegar er auðveldara að nefna, eru þau skipti sem Surefire hefði bjargað mér áður en ég eignaðist slíkan grip.

Þegar ég var sem björgunaraðili í leit að manneskju í miklu myrkri nokkuð út fyrir alfaraleið og peran á Maglite ljósinu fór skyndilega og ég þurfti að klöngrast langa leið tilbaka hægt og rólega og auðvitað gagnslaus í leitinni sem þá fór fram (þetta er auðvitað aldrei vandamál í LED Surefire ljósinu hjá mér )

Og þegar ég var að hlaupa að slysstað út í móa í myrkri með lítið vasaljós og stein-lá eftir að hlaupa á þúfu sem ég sá ekki. Með Surefire ljósinu hefði ég séð þúfuna og miklu meira.

Ég nota Surefire LX2 ljós og hefur ljósið reynst mér ótrúlega vel. Ég valdi LED ljós þar LED perur endast svo lengi að maður þarf líklega aldrei að láta skipta um, auk þess sem þær eru ekki viðkvæmar fyrir hnjaski. LX2 ljósið er með tveimur ljósstillingum, lág- og há stilling. Lága stillingin er þó hærri en flest vasaljós sem ég hef átt, og háa stillingin er gríðarlega björt og fólk er nánast undantekningalaust alveg hissa á þessu ljósmagni úr þessu litla tæki.


BS, höfuðborgarsvæðinu.

Hundurinn í næsta húsi kynntur fyrir Surefire

Nafn: Helgi
Ljós: 6P Original / E2D Led Defender


Ég hef verið vasaljósaunnandi síðan ég man eftir mér og hef átt þau ófá í gegnum tíðina. Ég kynntist Surefire ljósunum fyrir rúmum þremur árum og verð að segja að þetta varð ást við fyrstu sín. Ljósmagnið var hrikalegt úr ekki stærri grip og ég hef komist að því að gæði ljósanna á sér fáar hliðstæður.

Fyrsta Surefire ljósið sem ég eignaðist, fyrir um það bil þremur árum, var 6P með peru en fyrir tæpu ári eignaðist ég E2D Led. Ég hef prófað nokkrar aðrar tegundir og eignast síðan en Surefire verður alltaf fyrir valinu þegar ég þarf að velja ljós fyrir hin ýmsu verkefni.

Ég bý í raðhúsi á höfuðborarsvæðinu og nágranni minn á stóran og stæðilegan hund. Hundurinn á það til að koma inn á lóðina mína og skilur þá eftir stór stykki. Eitt sinn sá ég hann nálgast lóðina og var með E2D led ljósið á mér. Um leið og hundurinn kom inn á lóðina skellti ég ljósgeislanum úr E2D Led ljósinu beint framan í hann. Ég hef aldrei séð neitt dýr jafn fljótt í burtu. Hann stoppaði í sporunum og fór með skottið á milli lappanna til baka. Hann er hættur að koma yfir í dag.

Ég væri alveg til í að bæta E1B Backup í safnið mitt :)

Helgi, höfuðborgarsvæðinu


Aftur í efni | Aftur í aðalvalmynd