Aðalvalmynd:
Um Surefire
Surefire ábyrgð
Surefire ábyrgist að hin selda vara sé laus við alla framleiðsugalla, bæði á öllu efni og öllum göllum sem tengja má við samsetningu ljósanna sem og galla í rafeindabúnaði. Ábyrgðin sem er til lífstíðar miðast eingöngu við upphaflega kaupanda vörunnar. Við gerum við vöruna eða skiptum henni út fyrir nýja ef skoðun á gallaðri vöru leiðir í ljós að um framleiðslugalla sé að ræða.
Almennt slit á vörunum fellur ekki undir ábyrgð s.s. útbrunnar perur, tæmdar rafhlöður og almennt slit á rofum. Vörur sem skemmast við slæma meðferð falla úr ábyrgð. Skemmdir sem verða vegna leka úr rafhlöðum af annarri tegund en Surefire falla ekki undir ábyrgð Surefire.
Rafhlöður
Mælt er með að notaðar séu rafhlöður frá Surefire í ljósin eða rafhlöður frá viðurkenndum framleiðendum eins og Panasonic®, Energizer®, eða Duracell® til að tryggja örugga notkun.
Borið hefur á fjölmörgum tilfellum þar sem notuð hefur verið léleg framleiðsla eða falsaðar lithium rafhlöður sem hafa orsakað sprengingar í rafeindatækjum. Gakktu úr skugga um að þú sért að kaupa vandaðar vörur af viðkurkenndum söluaðilum þegar þú verslar rafhlöður.