Afgreiðslutími:
Vörurnar eru öllu jafna afgreiddar frá okkur næsta virka dag, en þó getur hent að vörur eru tímabundið uppseldar og verður þá strax haft samband í síma eða með tölvupósti. Afgreiðslutími á vörum sem eru sérpantaðar er misjafn eftir framleiðenda en haft verður samband og gefinn upp áætlaður afgreiðslutími.
Afhending:
Vörurnar eru sendar kaupanda með pósti eða keyrðar heim af söluaðila, fer eftir staðsetningu kaupanda og ætti að jafnaði að berast 2-3 virkum dögum eftir pöntun ef varan er til á lager.
Persónuupplýsingar:
Allar upplýsingar sem verða til við pantanir eru trúnaðarmál og meðhöndlaðar sem slíkar. Fullum trúnaði er heitið. Á engan hátt munu upplýsingar verða afhentar þriðja aðila.
Söluskilmálar:
Hið selda er eign seljanda þar til fullnaðargreiðsla hefur borist.
Ábyrgðarskilmálar:
Reikningur gildir sem ábyrgðarskírteini. Um leið og við afhendum þér þann búnað sem fram kemur á reikningnum viljum við leggja áherslu á mikilvægi þess að kynna sér sem best notkun búnaðarins í handbókum framleiðanda. Séu einhver atriði óljós eftir að hafa kynnt sér búnaðinn í handbókum framleiðanda, vinsamlegast hafið samband við skrifstofu okkar í síma 511 20 11 eða með því að senda okkur tölvupóst á info(@)khelgason.is
Ábyrgðin tryggir kaupandanum að varan verði laus við framleiðslugalla frá kaupdegi og út ábyrgðartímann. Ef K. Helgason heildverslun ehf. fær tilkynningu um slíka galla á ábyrgðartímabilinu mun K. Helgason heildverslun ehf. svo fljótt sem auðið er, annað hvort lagfæra eða skipta um vöruna sem reynist vera gölluð.
Ábyrgðin gildir í að lágmarki þann tíma sem neytendalög segja til nema annað sé tekið fram.
Ábyrgðin tekur ekki til galla sem stafa af:
K. Helgason heildverslun ehf. ehf áskilur sér rétt til að senda vöru til framleiðanda til úrskurðar um galla.
Ábyrgðin gildir aðeins fyrir upphaflega kaupanda vörunnar. Ábyrgðin fellur sjálfkrafa úr gildi ef varan er seld þriðja aðila.
Reikningsviðskipti:
Ef ekki hefur verið greitt 14 dögum eftir eindaga reiknings er reikningurinn sendur sjálfkrafa til innheimtufyrirtækis til innheimtu með tilheyrandi aukakostnaði.