FakeTV fæst í Glóey •
Ármúla 19 • Sími 568 1620
Nýtt tæki í baráttunni við innbrotsþjófa - lætur þá halda að einhver sé heima að horfa á sjónvarpið
FakeTV þjófafælan gefur frá sér samskonar birtu og stafar frá sjónvarpstækjum. Tilgangurinn er að fá innbrotsþjófa til að halda að einhver sé heima að horfa á sjónvarpið og fæla þá þannig frá frekari aðgerðum.
FakeTV þjófafælan er hugsuð sem viðbót við aðrar ráðstafanir til að draga úr hættu á innbrotum þegar fólk er ekki heima. Þá er mikilvægt að láta líta út sem einhver sé heima, m.a. með því að nota tímarofa til að kveikja og slökkva á ljósum. FakeTV bætir svo um betur og gefur til kynna að einhver sé heima að horfa á sjónvarpið. Tækið er mjög einfalt í notkun og þarf aðeins að stilla það einu sinni.
FakeTV er með birtuskynjara, sem kveikir sjálfkrafa á tækinu þegar dimmir. Velja má um að hafa kveikt á tækinu í 4 eða 7 tíma. Tækið endurtekur þessa rútínu síðan daglega og er því alltaf virkt.
Ennfremur má tengja FakeTV við tímarofa til að hafa nákvæma stjórn á notkun þess. Einnig má hafa stöðugt kveikt á því.
FakeTV má staðsetja hvar sem er innanhúss. Áhersla er lögð á að tækið sjálft sjáist ekki utanfrá, heldur aðeins sjónvarpsglampinn sem frá því kemur. Tækið tekur afar lítið pláss.
Ekki er hægt að láta kvikna og slökkna á sjónvarpstækjum með tímarofa og því henta þau ekki í þetta hlutverk þjófafælu — auk þess sem þau eyða 200—300 wöttum, en FakeTV aðeins 3 wöttum.
Leiðbeiningar fylgja á íslensku.
Hvernig virkar FakeTV?
Ljósglampinn sem sjónvarpstæki gefur frá sér er ólíkur allri annarri birtu á heimilinu. Hann hefur grá-bláleitan tón og breytist að styrkleika eftir því sem myndin á skjánum breytist, stundum hratt, stundum hægt.
FakeTV líkir að öllu leyti eftir sjónvarpsglampanum. Tölvukubbur tækisins eykur og minnkar birtumagnið í díóðu-ljósaperunum á tækinu. Birtan sem kemur frá FakeTV lýsir upp herbergi með nákvæmlega sama hætti og sjónvarpstæki. Birtubreytingin endurspeglar það sem fer fram á sjónvarpsskjánum – hvort sem það er skipting á milli myndskeiða, hreyfing eða annað sem birtist í útsendingunni. FakeTV breytir birtu og litum eins og í raunverulegri sjónvarpsútsendingu.
Áhrifin eru einstök. Utanfrá að sjá er ekki hægt að sjá muninn á birtunni frá FakeTV og venjulegu sjónvarpi. Fólk sem fengið var til að taka þátt í prófunum við þróun tækisins gat ekki greint á milli birtu frá FakeTV og sjónvarpi.